• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

C – vítamín / Askorbínsýra.

Skrifað 2010-02-28 · Bætiefni og vítamín

C-vítamín eða askorbínsýra / ascorbic acid er vatnsleysanlegt


C-vítamín eða askorbínsýra / ascorbic acid er vatnsleysanlegt og skilst út með þvaginu en geymir ekki umframmagni í líkamanum.  Það þýðir að daglega þurfum við  að fá nægilegt magn vítamínsins úr fæðunni.  Eins og síðari hluti nafnsins ber með sér er C-vítamín sýra, í rauninni veik sýra, en þó sterkari en edikssýra.

Meginhlutverk C – vítamíns:  Andoxunaráhrif C-vítamíns hafa vakið mikla athygli og rannsóknir benda til þess að það geti haft margþætt áhrif á heilsuna. C-vítamín er sindurvari (andoxunarefni) sem ver frumur líkamans gegn skaðlegum áhrifum stakeinda, en það eru úrfellingarefni sem verða til við efnaskipti í líkamanum.  Það er hjálparhvati í ýmsum efnahvörfum, meðal annars við myndun kollagens í bandvef, sem er mikilvægur fyrir vöxt æða, beina, góms og tanna, græðslu sára, viðnám gegn sýkingum og fleira.  Skyrbjúgur tengist skorti á bandvefsmyndun.  Ef einstaklingur er að taka inn járn eykur það nýtingu járnsins.

C-vítamín aðstoðar við streituvarnir líkamans með myndun streituhormóna og þarfnast líkaminn meira af C-vítamíni þegar hann er undir andlugu eða líkamlegu álagi.

Hugsanlegt er að C-vítamín dragi úr virkni krabbameinsvaldandi efna eins og nítrósamína og dragi þannig úr myndun krabbameins, t.d. í maga.

C - vítamín er nauðsynlegt til að auka viðnám líkamans gegn sýkingum. Vinnur gegn hjarta- og æðasjúkómum.  Dregur úr ófrjósemi karla.  Eykur frásog járns.  Hefur áhrif á húðgæð, bandvefi, tennur.  Dregur úr áhættu á blöðrubólgu, dregur úr kólesterólmagni í blóði og er náttúrulegt hægðalyf.

Kunnar eru niðurstöður rannsókna á jákvæðum áhrifum C-vítamíns á kvef, bæði fyrirbyggjandi og Það hjálpar einnig við styrkingu á ónæmiskerfi líkamans og til varnar veiru- og bakteríusýkingum.

C-vítamín er einnig líkamanum nauðsynlegt eftir aðgerðir, líkamsbruna og áföll og einnig fyrir kollagens til flýta fyrir húðvefinn til að gróa og til að draga úr öramyndun.  Taka skal 300 mg til 1 gramm daglega eftir aðgerð og eftir áföll.

C-vítamín er notað við C-vítamínskorti,  skyrbjúg sem er fátíður nú til dags.

Rannsóknir benda til þess að C-vítamín dragi úr hættu á sumum tegundum krabbameins, hjarta- og æðasjúkdómum, háum blóðþrýstingi, fituúrfellingu æðaveggja og augndrera.  Þær benda einnig til að C-vítamín verndi húðina gegn skaðlegum áhrifum útfjólublárra geisla A og B og verji hana gegn ótímabærri öldrun og hrukkum.

C – vítamín skortur

Einkenni skorts lýsa sér gjarnan sem þreyta, vöðvaslen, blæðingar, hæg græðsla sára og skert mótstaða gegn sýkingum ásamt járnskortsblóðleysi vegna lélegrar nýtingar járnsins.  Einnig blóðnasir, tannlos, tannskemmdir, bólginn og aumur gómur sem blæðir úr.  Mæði, meltingartruflanir, sárir og bólgnir liðir, blóðleysi, stökkar háræðar og ótímabær öldrunareinkenni.  Síþreyta, slen, listaleysi, vöðvaverkir, áreynslu-öndunarerfiðleikar.   

Þekktustu skortseinkenni C-vítamíns er skyrbjúgur sem er lífshættulegur hörgulsjúkdómur.  Hann veldur meðal annars blæðingu í húð, vöðvum og innri líffærum.  Einkenni skyrbjúgs eru einnig lausar tennur, tannholdsbólga, blóðleysi og fleira.  Öldruðu fólki sem býr eitt, áfengissjúklingum, þeim sem eru háðir lyfjum og þeir sem ekki gæta þess að borða fjölbreyttan mat eru í áhættuhópi til að fá skyrbjúg.

Fæðutegundir

C-vítamín er fyrst og fremst að finna í ferskum ávöxtum og grænmeti og söfum úr þeim. Mest er af C-vítamíni í öllum sítrusávöxtum, sólberjum og kíví.  jarðarber og allir sítrusávextir eru einnig mjög auðugir af C-vítamíni.

Einnig mikið af C-vítamíni í jarðarberjum, grænmeti, eins og papriku, gulrófum og hvers konar grænu káli, svo sem grænkál, spergilkál, hvítkál, blómkál, brokkólí, steinselju, og rósakál. Töluvert magn af C-vítamíni er einnig í  rifsberjum, tómötum, karöflum, lifur og nýru.

Reykingar, áfengi, súrefni, birta, hiti, suða og vatn eru gagnvirk C-vítamíni.

Aukaverkanir

Stórir skammtar af C-vítamíni, allt að 1 g á dag, eru taldir skaðlausir en stærri skammtar valda gjarnan ónotum í maga vegna sýruáhrifa, höfuðverk, flökurleika auk þess sem líkur aukast á að nýrnasteinar myndist.

Með neyslu á fjölbreyttu fæði á að vera hægt að uppfylla C-vítamínþörfina. Ef tekin eru inn fæðubótarefni sem innihalda C-vítamín er mikilvægt að gæta að því að taka ekki of mikið.
Neyti fólk of stórra skammta af C-vítamíni er hætta á nýrnasteinum, því nýrun skilja út mun meira af niðurbrotsefnum C-vítamíns en önnur líffæri. Aðrar aukaverkanir eru aukin þvagmyndun og niðurgangur.

Ýmis lyf geta leitt til C-vítamínskorts eins og til dæmis: ýmis sýklalyf, s.s. súlfalyf og nalidixínsýra, getnaðarvarnartöflur, salisýlsýruafleiður, s.s. Magnýl, Aspirin, asetýlsalisýlsýra. Líka indómetasín, parasetamól og barksterar, s.s. prednisólon.

Ráðlagðir dagsskammtar eru:

Reykingamenn gætu þurft daglega meira magn vegna hraðara niðurbrots C-vítamíns í líkömum þeirra.  Eins geta ýmsir sjúkdómar haft áhrif á meiri C-vítamínþörf, sýkingar, skurðaðgerðir, og notkun getnaðarvarnarpillu.

• Börn að 6 mánaða aldri:  30 mg
• Börn 6-12 mánaða:   35 mg
• Börn 1-3 ára:   40 mg
• Börn 4-10 ára:   45 mg 
• Drengir 11-14 ára:  50 mg
• Karlar frá 15 ára aldri:  60 mg
• Stúlkur 11-14 ára  50 mg
• Konur frá 15 ára aldri:  60 mg
• Þungaðar konur:   70 mg
• Konur með barn á brjósti:  90 mg

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).