• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

D vítamín / kalsíferól

Skrifað 2010-03-01 · Bætiefni og vítamín

D–vítamín / kalsiferól er fituleysanlegt vítamín

D– vítamín er fituleysanlegt vítamín, það er að líkaminn geymir umframmagn af D-vítamíni aðallega í lifrinni en einnig í fituverjum og vöðvum.  Það þýðir að það þarf ekki að neyta þess á hverjum degi.  D-vítamín, telst bæði vera vítamín og hormón og heitir öðrum nöfnum: Kalsíferól, Kólíkalsiferól, Calciferol, Calcifediol, Calcitriol.  Það er stundum kallað sólarvítamín vegna þess að húðin framleiðir hormónin þegar hún verður fyrir áhrifum útfjólublárra geisla sólarljóss. Auk þess fáum við D-vítamín úr fæðunni.

Meginhlutverk D–vítamíns er að stýra kalk og fosfórbúskap líkamans.  Sá búskapur gegnir lykilhlutverki í vexti og viðhaldi beina með því að stuðla að upptöku kalks, fosfórs og annarra steinefna úr þörmunum.  það hefur svo aftur áhrif á  uppbyggingar beinanna og tanna.  D-vítamín stuðlar einnig að eðlilegum kalkstyrk í blóði.

D-vítamín er nauðsynlegt til að skjaldkirtill og fleiri kirtlar starfi eðlilega.

Rannsóknir á beinþéttni hjá eldri borgurum leiða ítrekað í ljós nauðsyn þess að þeir taki inn D-vítamín til að koma í veg fyrir beinþynningu.  Því er æ algengara að bætt sé D-vítamíni í kalktöflur.

D - vítamín (kalsíferól, kólíkalsiferól) er nauðsynlegt til að skjaldkirtill og fleiri kirtlar starfi eðlilega og það getur komið í veg fyrir kalkskort vegna vanstarfsemi skjaldkirtils.  D-vítamín er notað til að hindra og lækna beinþynningu og beinkröm.  Það er gefið börnum og ófrískum konum til að fyrirbyggja beinkröm.  Það hindrar tannskemmdir og tannrótarbólgur.

Notað í meðferð við psoriasis.  Dregur úr hættu á mænusiggi.  D-vítamín getur hugsanlega haft áhrif til að fyrirbyggja krabbamein, sykursýki af gerð eitt (hjá ungum börnum) og haft áhrif til styrkingar gegn sjálfsónæmissjúkdómum.  Getur styrkt beinin, stuðlað að auknum vöðvastyrk og þannig dregið úr líkum á að fólk detti og beinbrjóti sig.

D – vítamín skortur getur valdið tannlosi og tannrótarbólgu.  Einkenni geta einnig verið lystarleysi, þróttleysi, vöðvaslappleiki, vöðvarýrnun, önuglyndi, ótímabær öldrun. Valdið beinþynningu sem leiðir til brothættra beina.  Skortur á alvarlegu stigi veldur beinmeyru (osteomalasia) en það gerir beinin kalklítil og mjúk, en við það geta þau aflagast.  Skortur er talinn gera karla viðkvæmari fyrir krabbameini í blöðruhálskirtli og ristli, en konur verði viðkvæmari fyrir brjóstakrabbameini.

Hjá börnum er helsta einkenni D-vítamínskorts beinkröm (þar sem bein bogna og rifbein svigna), tannskemmdir og kyrkingslegur vöxtur.  Nýburar fæðast með forða af D-vítamíni, en móðurmjólkin er fremur snauð af þessu vítamíni og því er ráðlegt að öll ungbörn fái D-vítamíndropa frá 4 vikna aldri.  En frá 6 mánaða aldri er æskilegt að þau fái lýsi eða annað bætiefni, sem inniheldur D-vítamín.

Yfir vetrartímann þegar sólar nýtur mjög takmarkað, er þörfin fyrir D-vítamín úr fæðunni eða fæðubótarefnum mun meiri en í suðlægari löndum.  Því er nauðsynlegt að reyna að neyta D-vítamín ríkrar fæðu, taka þorskalýsi eða annan D-vítamíngjafa.  Það gæti jafnvel skipt meira máli fyrir kalkbúskap líkamans að fá nægilegt magn af D-vítamíni heldur en að auka kalkskammtinn umfram ráðlagðan dagskammt. 

Fæðutegundir

D-vítamínið fáum við frá áhrifum sólarinnar og því æskilegt að vera sem mest útivið í sólríku veðri. Einnig fáum við D-vítamín úr lýsinu, en víða erlendis er íslenska lýsið talið einn besti vítamíngjafinn, þar sem sjórinn umhverfis landið er talinn ómengaðri en víða annarsstaðar í heiminum og lýsið því gæðameira.

D-vítamín er í fáum fæðutagundum en þær eru aðallega: þorsklifur, sardínur, silungur, túnfiskur og feitur fiskur eins og lax, síld og lúða.  Einnig er nokkuð af D-vítamíni í fræspírum, sveppum, sólblómafræjum og eggjum.

Tilbúnu D-vítamíni er bætt í ýmsa fæðu, eins og morgunkorn og mjólkurvörur.

Ekkert D-vítamín er í jurtaolíum eða jurtaafurðum nema þær séu D-vítamínbættar.

Aukaverkanir

Ekki má gefa ungabörnum lýsi og AD-vítamíndropa samtímis vegna hættu á D-vítamín eitrun.

Of stórir skammtar af D-vítamíni geta orsakað að of mikið kalk (hypercalcaemia) verður til í blóðinu, en það veldur hægðatregðu, þunglyndi, slappleika og þreytu. Ef ástandið er viðvarandi geta kalsíumsölt farið út í nýru og valdið nýrnasteinum og nýrnabilun.

Eitrunareinkenni eru: Ógleði, lystarleysi, höfuðverkur og niðurgangur, en alvarlegri einkenni eru kalkmyndun í mjúkum vefjum líkamans, kalkmyndun í nýrum og lífshættulegur nýrnaskaði.

Börn eru viðkvæmari fyrir ofneyslu en fullorðnir og eru dæmi um D-vítamíneitrun vegna mistaka við lýsisgjöf þar sem lúðulýsi hefur verið gefið í stað þorskalýsis.  Einnig skal haft í huga mataræði ef mikið er neitt af D-vítamínauðugri fæðu eða D-vítamínbættri fæðu.

Milliverkanir Sum segaleysandi lyf geta aukið þörf fyrir D-vítamín. Laxerolía og paraffínolía draga úr frásogi D-vítamíns.

Ráðlagðir dagsskammtar eru:

Þar sem D-vítamín er fituleysanlegt og umfram magn geymist í líkamanum, er ekki nauðsynlegt að taka það inn daglega.  Heilbrigðum einstakling væri æskilegt að taka lýsi 5-6 daga vikunnar en leyfa líkamanum að hvíla sig 1-2 dag vikunnar til að nýta umframmagn sem safnast hefur upp í lifrinni.

• Börn 6-12 mánaða  10 mcg
• Börn 1-10 ára   10 mcg
• Stúlkur 11-18 ára  10 mcg
• Konur 19-60 ára   7 mcg
• Konur eldri en 60 ára  10 mcg
• Drengir 11-18 ára  10 mcg
• Karlar 19-60 ára   7 mcg
• Karlar eldri en 60 ára  10 mcg
• Konur á meðgöngu  10 mcg
• Kona með barn á brjósti 10 mcg

 

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).