• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

E vítamín / tókóferól

Skrifað 2010-03-01 · Bætiefni og vítamín

 E-vítamín er fituleysanlegt vítamín

E–vítamín er samheiti yfir tvo flokka efna, tókóferól og tókótríenól sem hafa svipaða virkni á líkamann.  E-vítamín er fituleysanlegt vítamín og skilst þar af leiðandi ekki út úr líkamanum með þvagi.  Umframmagn safnast fyrir, en ólíkt öðrum fituleysanlegum vítamínum geymist það stuttan tíma í líkamanum.

Fituleysanleg vítamín eru kölluð sindurvarar (antioxidants).  Þeir eyða svokölluðum stakeindum sem geta myndast við ýmis efnahvörf í líkamanum en í miklu magni geta stakeindir valdið illkynja frumubreytingum í líkamanum.

E-vítamín er samheiti yfir tvo flokka efna, tókóferól og tókótríenól sem hefur svipaða virkni á líkamann. Auðvelt er að átta sig á hvort E-vítamín sé náttúrulegt eða tilbúið, því náttúrulegt E-vítamín er skilgreint sem d-alfa tókóferól (á ensku: d-alpha tocopherol) en tilbúið er skilgreint sem dl-alfa tókóferól. Náttúrulegt E-vítamín virkar mun betur en tilbúið.

Meginhlutverk E–vítamíns er nauðsynlegt andoxunarefni sem kemur í veg fyrir skaða á frumuhimnum.   Einnig er það nauðsynlegt fyrir starfsemi taugakerfisins.

E-vítamín ásamt C-vítamíni í veg fyrir myndun nítrósamína í pækilsöltuðum matvörum og annarri fæðu, en margt bendir til þess að nítrósamín geti valdið krabbameini í maga.

E-vítamín er öflugt þrávarnarefni fyrir ómettaðar fitusýrur, kynhormóna og
fituleysanleg vítamín en þeim er hætt á að eyðileggjast í líkamanum vegna súrefnis. E-vítamín aðstoðar við súrefnisflutning, hefur æðaútvíkkandi áhrif og bætir blóðrásina.  Það er náttúrulegur storkuvari og blóðsegaleysir og vinnur því gegn æðakölkun.  Hæfileiki þess til að verja frumur líkamans gegn stakeindum gerir það að öflugu andoxunarefni.

Rannsóknir hafa verið gerðar og beinst að verndandi þætti E-vítamíns gegn ýmsum tegundum krabbameins, og hjartasjúkdómum svo eitthvað sé nefnt. Vísindamenn vilja fara varlega í að alhæfa niðurstöðurnar en þær benda til jákvæðra áhrifa á þessa þáttum.

E-vítamín hefur góð áhrif á hjarta- og æðakerfið með því að hindra oxun á fitu í líkamanum (LDL-kólesteróls).  Verndar frumur líkamans gegn stakeindum.  Talið að geti gefið vörn gegn krabbameini, hjarta- og æðasjúkdómum.   Einnig talið að gæti aukið frjósemi og kyngetu og jafnvel hamlað ótímabærri öldrun.

Hátt hlutfall þess í blóði getur dregið úr hættu á hrörnun í sjónubotni (macular degenration), sem er ein helsta orsök blindu hjá öldruðum.

Margir bera E-vítamín olíu á brunasár og fleiður með góðum árangri, þar sem hún hefur afar græðandi áhrif og kemur í veg fyrir öramyndun.

Er gott í kremagerð og aðrar húðvörur þar sem það getur virkað sem gott rotvarnarefni, samhliða því að vera græðandi og gott fyrir húðina.

E–vítamín skortur

Skortur á E-vítamíni er mjög sjaldgæfur hjá heilbrigðum einstaklingum.  Það er helst að hans verði vart hjá fyrirburum sem fá ungbarnaþurrmjólk með ónógu E-vítamíni ásamt ríflegu járni og háu hlutfalli af fjölómettuðum fitusýrum. Einnig hafa sjúklingar sem ekki geta nýtt fitu úr fæðunni, greinst með E-vítamínskort.

Skortur getur lýst sér með vökvasöfnun, sárum á húð og fækkun rauðra blóðkorna.  Einnig  sem vöðvarýrnun, hrörnun kransæða, stífla í æðum lungna, eyðing rauðra blóðkorna, blóðrauðakvillar.  Kvillar tengdir æxlun, svo sem ófrjósemi og missir kyngetu.  Einnig gæti Þessi skortur aukið hættu á hjartasjúkdómum, krabbameini og hrörnunarsjúkdómum

Fæðutegundir

Hægt er að fullnægja þörfinni með því að borða fjölbreyttan mat og velja E-vítamínauðuga matarolíu. 

Besti E-vítamíngjafinn er jurtaolía, t.d. sólblómaolía, maísolía og rapsolía (repjuolía).  Einnig er mikið E-vítamín í möndlum, heslihnetum, jarðhnetum, sólblómafræjum og hveitikími og dökkgrænu blað grænmeti.  í grænkáli og steinselju, spínati, avókadó og rauðri papriku er einnig nokkuð af E-vítamíni. Eggjarauður, sojabaunir og rækjur eru einnig góðir E-vítamíngjafar en í kjöti og mjólkurmat er lítið E-vítamín.

Þörfin fyrir E-vítamín fer mjög eftir neyslu á fjölómettuðum fitusýrum og járni en járn hvatar peroxun fitusýra.  Það þýðir að eftir því sem meira er af fjölómettuðum fitusýrum og járni í matnum því meiri verður þörfin fyrir E-vítamín.  Því kemur það sér vel, að matarolía, lýsi og annar matur, sem inniheldur fjölómettaðar fitusýrur, eru einnig góðir E-vítamíngjafar.

 
Getnaðarvarnalyf, paraffínolía, laxerolía, járn, klór, hiti, súrefni og frost draga úr frásogi frá meltingarvegi.

Aukaverkanir

Ef tekin eru fæðubótarefni, sem innihalda E-vítamín, skal gæta þess vel að taka ekki inn of mikið magn þar sem auðvelt er að fullnægja þörfinni úr fæðu og jurtaolíum.

Eitrunareinkenni af ofskömmtun eru höfuðverkur, verkir í meltingarfærum, ógleði, niðurgangur og lækkaður blóðþrýstingur.  Aukin blæðingarhætta (E-vítamín ætti því ekki að taka inn með blóðþynningarlyfjum).  Einstaklingar með K-vítamín skort ættu alls ekki að taka inn E-vítamín vegna aukinnar blæðingarhættu

Vísindamenn telja að ekki sé fræðilegur grundvöllur fyrir því að ráðleggja fólki að taka stóra skammta af E-vítamíni með því að neyta bætiefna til að koma í veg fyrir langvinna sjúkdóma.

Ráðlagðir dagsskammtar eru:

• Börn 6-12 mánaða  3 mg
• Börn 12-23 mánaða   4 mg
• Börn 2-5 ára   5 mg
• Börn 6-9 ára   6 mg
• Stúlkur 10-13 ára  7 mg
• Konur eldir en 14 ára  8 mg
• Drengir 10-13 ára  8 mg
• Karlar eldri en 14 ára  10 mg
• Konur á meðgöngu  10 mg
• Kona með barn á brjósti 11 mg

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).