K vítamín
K-vítamín tilheyrir hópi fituleysanlegra vítamína. K-vítamín safnast þó ekki fyrir í líkamanum eins og önnur fituleysanleg vítamín, heldur er því breytt í efni sem skilst út úr líkamanum með þvagi og galli.
K-vítamín er til af tveim gerðum en þær eru: K1-vítamín (einnig kallað fýtómenadíón) sem fæst úr grænum plöntum og K2-vítamín (einnig kallað menakínón) sem verður til vegna tilstuðlan örvera í meltingarveginum.
Meginhlutverk K–vítamíns er lífsnauðsynlegt öllum mönnum fyrir myndun storkuþátta í lifrinni en þeir stuðla að blóðstorknun. K-vítamín er þekktast fyrir þennan þátt í blóðstorknun og við að halda blóðflögum heilum.
Hjálpar til við eðlilega beinmyndun í líkamanum, og hægir á beinhrörnun með því að draga úr kalktapi.
Rannsókn hefur sýnt að K vítamín kemur ekki eingöngu í veg fyrir kalkeringar í slagæðum heldur getur það einnig minnkað kölkun sem þegar hefur átt sér stað um 37%. Þessi uppgötvun getur minnkað líkurnar á dauðsföllum hjá fólki með króníska nýrna- og kransæðasjúkdóma.
K-vítamín er notað vegna K-vítamínskorts, vegna blæðinga samhliða inntöku segavarnarlyfja eins og til dæmis warfarín og ekki síst vegna blæðinga í ungabörnum þar sem þau hafa ekki möguleika á að framleiða K-vítamín í meltingarvegi.
K – vítamín skortur
Einkenni K-vítamínskorts eru auknar tilhneigingar til að blæða, t.d. blæðing frá meltingarvegi, og marblettir.
Skortur á K-vítamíni veldur því að það tekur lengri tíma fyrir blóðið að lifrast (storkna) og það getur orsakað innri blæðingar. K-vítamín finnst í laufum plantna en í mönnum er K-vítamínið yfirleitt framleitt af örverum sem finnast í meltingarveginum.
Gerlar sem framleiða vítamínið eru ekki til staðar í nýfæddum börnum. Skortur á K-vítamíni hjá nýfæddum börnum, sérstaklega fyrirburum, getur valdið blæðingum í þörmum og höfði innan viku frá fæðingu. Því er nýfæddum börnum oft gefin sprauta með K-vítamíni strax eftir fæðingu. Einnig er hægt að gefa móðurinni K-vítamín við fæðinguna til þess að koma í veg fyrir skort hjá barninu.
Skortur á K-vítamíni er sjaldgæfur en kemur helst fram ef viðkomandi hefur verið með langvarandi niðurgang eða neytt hægðalosandi lyfja í lengri tíma. Þetta stafar af því að niðurgangur hefur neikvæð áhrif á örverurnar í meltingarveginum sem framleiða K-vítamínið. Einstaklingar sem þjást af lifrarsjúkdómum eru í áhættuhópi vegna K-vítamínskorts. Einnig geta Þeir sem neyta fábreyttrar fæðu átt það á hættu að fá K-vítamín skort.
Langvarandi sýklalyfjameðferð getur einnig valdið K-vítamín skorti
Fæðutegundir
K-vítamín sé í miklum mæli í dökkgrænu grænmeti (spergilkáli, spínati og rósakáli), en einnig úr sojabaunum, ólífum, hráu blómkáli, aspars, linsubaunum, kjúklingabaunum, grænum eplum, grænu tei, eggjarauðum, majónes og lifur.
Að auki eru nokkrar grænmetisolíur eins og sojaolía, canola olía og ólífuolía ríkar af K-vítamíni sem getur haft áhrif á vítamíninnihaldið í tilbúnum mat. Nauðsynlegt er að borða K-vítamín ríka fæðu í sambærilegu magni daglega til að minnka sveiflur í áhrifum fæðu hjá segavörnum líkamans.
Mjólkursýrugerlar auka framleiðslu K-vítamíns í bakteríuflóru þarmanna, og er því gott að neyta mjólkurvara með viðbættum mjólkursýrugerlum. Hnetuolía, kornolía og sesamolía eru K-vítamín snauðar.
Að sjóða eða frysta matinn virðist ekki hafa mikil áhrif á K-vítamín innihaldið.
Aukaverkanir
Of mikil neysla K-vítamíns getur skaðað rauðu blóðkornin hjá ungbörnum, en öðrum stafar ekki hætta af of miklu K-vítamíni.
Ofnæmisviðbrögð eins og útbrot og kláði hafa komið fram hjá þeim sem hafa neytt stórra skammta af K-vítamíni.
Sum afbrigði K-vítamíns valda ertingu í húð og öndunarfærum.
Ráðlagðir dagsskammtar eru:
• Börn yngri en 1 árs 5-10 mcg
• Börn 1 – 10 ára 15-30 mcg
• Konur 45-65 mcg
• Karlar 45-80 mcg
• Konur á meðgöngu 65 mcg
• Kona með barn á brjósti 65 mcg
Sjúklingar í blóðþynnandi meðferð ættu ekki að taka inn K-vítamín. Kóvar virkar á móti K-vítamíni og því myndast nokkrir storkuþátta ekki eðlilega.
Segaleysandi/blóðþynnandi lyf, Magnýl® og warfarín, sjá viðbót í enda skjals.
Viðbót vegna nýlegrar rannsóknar:
Nýleg rannsókn hefur sýnt að K vítamín kemur ekki eingöngu í veg fyrir kalkeringar í slagæðum heldur getur það einnig minnkað kölkun sem þegar hefur átt sér stað um 37%. Annað sem er áhugavert við þessa rannsókn er að rannsakendur notuðu blóðþynningarlyf sem kallast Warfarin til að mynda kalkeringar í æðakerfum rottanna sem notaðar voru við rannsóknina.
Þetta sýnir að sérfræðingar þekkja að besta leiðin til að orsaka kölkun í æðaveggjum er við gjöf blóðþynningarlyfja. Það er spurning hvort fólki sé gerð grein fyrir þessum þætti þegar þeim er ávísað blóðþynningarlyfjum.
Þannig að niðurstöður rannsóknarinnar skipta fólk máli sem taka inn blóðþynningarlyf. Inntaka K vítamíns getur unnið á móti þessari hliðarverkun lyfjanna.