• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

Steinefni og snefilefni

Skrifað 2010-04-19 · Bætiefni og vítamín

 eru ólífræn efni sem umbreytast ekki í líkamanum.

Steinefni eru ólífræn efni, en það merkir meðal annars að ekki er möguleiki að umbreyta eðli þessara efna á sama hátt og lífrænna efna, eins og vítamínum og orkuefnum sem umbreytt er í líkamanum í önnur efni sem líkaminn þarfnast.  Steinefnin eru algerlega óbreytt frá því að við tökum þau inn og þar til líkaminn skilar þeim út.

Steinefni eru manninum mjög nauðsynleg og gegna mikilvægu hlutverki í margþættri líkamsstarfsemi. Til dæmis eru þau byggingarefni beina og tanna, þau taka þátt í samdrætti vöðva, stjórna vökvajafnvægi líkamans, eru þýðingarmikil í blóðmyndun, nauðsynlegur þáttur í myndun sumra próteina, þau umbreyta matnum í orku og margt fleira.

22 steinefni eru þekkt sem stuðla að góðri heilsu manna.  Þau skipta líkamann  miklu máli en sum þeirra verða að vera til staðar í mun meir magni en önnur, því að þau eru hluti af vefjunum.  Önnur þurfa ekki að vera í eins miklu magni (eins og t.d. snefilefni) af því að hlutverk þeirra er í nánu samhengi við hvata.  Hvatar stjórna til dæmis efnaskiptum og ýmsum öðrum hlutverkum líkamans.

Þau steinefni sem líkaminn þarfnast eru:  natríum, kalíum, kalk, fosfór, brennisteinn, magnesíum og klór.

En snefilefnin sem líkaminn þarfnast má nefna:  króm, kopar, flúor, joð, járn, mangan, mólýbeden, kóbalt, nikkel, kísill, tin, vanadíum, selen og sínk.

Sem  smá dæmi þá eru kalsíum og fosfór steinefni sem eru til dæmis hluti af beinum og tönnum.  Natríum og klór eru steinefni í söltum, sem stjórna sýru- og vökvajafnvægi í líkamanum.  Járn og sink er hluti ýmissa próteina sem meðal annars sér um flutning súrefnis í blóðinu, en þau eru einnig hluti ýmissa ensíma sem taka þátt í efnaskiptum í frumum.

Steinefni finnast bæði í jurta- og dýraríkinu.  Nauðsynlegt er að vanda vel til fæðuvals  því það skiptir miklu máli fyrir heilsufar okkar og orku.  Það þarf að vera fjölbreytt því fjölbreytni gefur breiðari flóru vítamína og steinefna.  Litríkur matur samanstandur að mestu af grænmeti og ávöxtum, en það er æskileg fæða sem er bæði holl, góð og vítamínrík ásamt því að vera trefjarík en hitaeiningasnauð fæða.

Vítamín og steinefni hafa engar hitaeiningar og hægt er að finna þau öll í matnum en tilbúin vítamín og fæðubótarefni koma aldrei í stað næringar og trefja úr fæðunni sjálfri. Æskilegt er þó að taka inn góð vítamín og steinefni, en varast skal að taka aldrei meira inn daglega en ráðlagðan dagskammt hverrar tegundar.

Sum steinefni frásogast auðveldlega yfir í blóðrásina, þau fara um líkamann og skiljast út með þvagi (líkt og vatnsleysanleg vítamín).  Önnur steinefni líkjast meira fituleysanlegum vítamínum, því þau fara um líkamann með öðrum efnum og ef tekið er of mikið magn gæti það valdið eituráhrifum.

Þarfir fólks fyrir næringarefni eru mjög breytilegar og því geta RDS gildin ekki sagt til um einstaklingsbundnar þarfir. Ráðlagðir skammtar koma aðeins að notum til að meta næringargildi fæðis fyrir hópa fólks eða sem viðmiðunargildi fyrir hollt fæði.

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).