• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

Meltingarvegur

Skrifað 2010-03-02 · Heilsa

Meltingarvegur er eitt af okkar mikilvægustu líffærum 

Meltingarvegur er eitt af okkar mikilvægustu líffærum, en fjöldi fólks veit hvorki hvernig hann er uppbyggður né hvernig hann starfar.   Ef við til dæmis ímynduðum okkur að við fylgdum eftir fæðu sem við borðuðum frá því við settum hana í munninn og þar til við skiluðum því sem eftir er í formi hægða.

Við byrjum á því að setja bita inn fyrir varirnar  sem eru holdmiklar og næmar, og upp í munninn.  Í munninum er tunga en hún fær takmarkaða hreyfingu vegna tunguhaftsins  sem festir tunguna við munnbotninn.  Á tungunni eru nokkrar gerðir tungutota þar sem næmir bragðlaukar hafa aðsetur. 

Í munninum er bitinn mulinn milli tannanna (sem eru aðallega úr tannbeini undir glerungi) og velt fram og til baka af tungunni sem blandar hann munnvatni áður en honum er kyngt.  Munnvatn sem kemur frá 3 pörum munnvatnskirtla.  Þessir kirtlar eru tvenns konar,  annað sér um vantskennt velli sem í er meltingarhvatinn amýlasi  og  hitt sér um slímvelli sem mýkir munnholið.  Í þessum vökvum eru einnig sölt, mótefni og önnur efni sem drepa bakteríur.  Melting kolvetna hefst strax í munni þar sem amýlasi klýfur sterkju í dextrín og maltósa.

 Þegar við kyngjum, flyst tuggan í gegnum kokið og niður um vélinda.  Svo tuggan fari niður í vélindað en ekki barkann (sem tilheyrir öndunarveginum),  þá lokar barkalok fyrir barkann meðan tuggan fer niður.  Vélindað er þakið slímhúð og liggur niður eftir brjóstholinu gegnum þindina og tæmir sig með iðrahreyfingum gegnum hringvöðva  í magamunna niður  í magann.  Maginn hefur 3 lög af sléttum vöðvavef og þar mylst fæðan í súpukennt iðramauk.  Kirtlar í magavegg gefa frá sér magasafana, pepsín sem efnameltir prótein og saltsýru (sem drepur bakteríur og stuðlar að niðurbroti bandvefja í kjöti). 

 Úr maga fer iðramaukið niður í smágirni sem skiptist  í skeifugörn,  ásgörn  og dausgörn.  Smágirnið er þakið slímu sem þakin er með milljónum þarmatota og frymisútskota sem nefnast þarmatítur eða örtotur.   Gall frá lifur sem kemur í gegnum gallblöðru og niður gallrás og meltingarhvatar úr brisi er losað inn í skeifugörnina til að vinna á maukinu til að gera það frásogshæft.  

Í skeifugörn kljúfa hvatar brissins próteinin í fjölpeppíð.  Síðan koma peptíðarnir sem þekjufrumurnar í skeifugörninni búa til og brjóta tvípepptíðin í frjálsar amínósýrur.  Brisamýlasinn heldur áfram að kljúfa kolvetni í maltósa. Þá verða til sérstakar tvísykrur í skeifugörn og klofna tvísykrurnar í einsykrur s.s glúkósa.  En glúkósa frásogast gegnum þekjuklæðningu þarmatotanna út í háræðarnar til lifrarinnar.  Lípasi frá brisi hvatar fituna úr fæðunni í fitusýrur og glýseról, en fitusýrur frásogast gegnum þekjufrumur þarmatotanna og flyst í mjólkuræðarnar.

Frásog glúkósa og amínósýra frásogast gegnum þekjuklæðningu þarmatotanna út í háræðarnar, en fitusýrur frásogast gegnum þekjufrumur þarmatotanna og flyst í mjólkuræðarnar.   Frumur smágirnisins framleiða nauðsynlega hvata til að ljúka við meltingu próteina, fitu og kolvetna.

Ómeltanleg efni og þau efni sem ekki hafa frásogast í smáþörmum, flytjast áfram  um ristilsloka til ristilsins.  Ristillinn skiptist í ristilbotn, risristil, þverristil, fallristin, bugðuristil og endar í endaþarmi.  Í digurgirni (ristli)  eiga gerlar fasta búsetu.  Þeir háma í sig næringarafgangana frá smáþörmunum og framleiða í staðinn vítamín sem frásogast  í ristli.  Tréni og önnur ómeltanleg efni er ófrásoguð fæða ásamt gallitarefni frá lifur eru uppistaða hægðanna sem losaðar eru út um digurgirnið. 

 

 

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).