Flúor / Fluoride
Flúor er snefilefni sem finnst víða í náttúrunni eins og plöntum og vatni.
Í upphaflegu formi er Flúor frumefni sem er hvarfgjarnt, gulgrænt tærandi gas. Í náttúrunni er Flúor aftur á móti bundið í steinefni. Vatnsefnisflúoríð eða HF er litlaus en lyktarsterk, gastegund sem myndar flúrsýru í vatni. Flúor myndar stöðug sambönd til dæmis sem natríumflúoríð, en það þekkir almenningur sem bætiefni í tannkrem. Flúoríð veldur umbreytingu á kalkfosfati í tönnum yfir í flúoratíð sem er mun sterkara efni gagnvart sýklasúrum úrgangsefnum.
Flúor er í öllum vefjum líkamans, mest þó í tönnum og beinum. Það er nauðsynlegt fyrir myndun og viðhald tanna og einnig er talið að flúor verndi tennur fyrir skemmdum. Í dag eru flest tannkrem og munnskol flúorbætt.
Flúor örvar myndun beina og það er jafnvel notað í blóðlíki, því þau leysa súrefni vel.
Veit ég ekki til að Manneldisráð Íslands hafi gefið út ráðlagða dagskammta af flúor en samkvæmt ýmsum upplýsingum er flúorneysla um 0,3-3 mg. Fæst það úr fjölmörgum fæðutegundum eins og fiski, kjöti, eggjum, kartöflum, smjöri, osti og tei, sjávarsalti og tei.
Flúoríð hefur margskonar lífeðlis- og lífefnafræðileg áhrif í líkamanum. Meðal annars hindrar það virkni ýmissa ensíma og hindrar prótínmyndun og vöxt.
Flúoreitrun í mönnum og dýrum, er þegar flúorupptaka er meiri en hæfilegt er í lengri eða skemmri tíma. Það kemur fyrst fram í bein- og tannvef. Í mönnum kemur þetta fyrst fram í blettum á glerungi tanna og í kjölfarið fylgja skemmdir. Í kindum getur komið fram svokallaður gaddur, sem er ofvöxtur í vissum tönnum. Önnur áhrif í mönnum eru liðverkir og aukin beinmyndun og áhrif á hjarta og æðakerfi.
Langtíma ofneysla getur leitt til vansköpunar. Hins vegar er hæfileg flúorneysla góð fyrir tennur og beinmyndun og natríumflúoríð má nota sem lyf við beinþynningu að nokkru marki. Flúor er nauðsynlegur í hæfilegu magni til eðlilegs þroska og viðgangs. Sé skortur á flúor í fæðu leiðir það til takmarkaðs vaxtar,
blóðleysis og ófrjósemi.
Flúoríð uppsogast hratt úr meltingarveginum og 5-10 g skammtur af natríumflúoríði er talinn banvænn. Staðbundin og bráð eituráhrif flúors á magaslímhúð lýsa sér í ógleði, uppköstum, magaverkjum, krampa og niðurgangi. Óstaðbundin og bráð eituráhrif flúors eru fjölbreyttari og alvarlegri. Þar má nefna kalkskort, blóðsykurskort, ertingu í taugakerfi, lágþrýsting og öndunartruflanir. Hjartabilun sem gæti leitt til andláts af öndunartruflunum.
Flúorgas er mjög eitrað, 0,1% styrkur þess í andrúmslofti veldur dauða á nokkrum mínútum. Áhrif flúrsýru eru mjög sterk og beinskeytt. Flúrsýra veldur bruna og eyðileggingu vefja og beina. Innöndun eims af flúrsýru veldur lungnabjúg og snerting flúrsýru eða uppgufun við augu getur valdið varanlegum augnskaða eða blindu.