• Þjónusta
    • Tímapantanir
    • Hómópatía
    • Fæðuóþol
    • C.O.R.E. Inergetix
  • Fróðleikur
    • Allar greinar
    • Listi yfir greinar
    • Almennt
    • Andleg málefni
    • Börn
    • Bætiefni og vítamín
    • Dýr
    • Heilsa
    • Mataræði
    • Ofnæmi
    • Pistlar
    • Remedíur
    • Sjúkdómar
  • Upplýsingar
    • Um mig
    • Staðsetning
    • Tenglar
  • English Material
  • Hafðu samband
  • Heilsustöðin Fold
  • Leita

Fæðuóþol og þarmaflóra

Skrifað 2010-03-03 · Heilsa

Samspil þarmaflóru og fæðuóþols 

Meltingarvegur mannsins er mjög mikilvægt líffæri.  Hann getur verið um 8-9 metrar í fullorðnum einstakling frá munni að endaþarmi.  Hann skiptist í munn, kok, vélinda, maga, þarma (skeifugörn, ásgörn og dausgörn), ristil og  endaþarm.

Meltingarvegurinn er allur þakinn slímhúð sem hefur mjög mikilvægum hlutverkum að gegna.  Hún er þakin þykku lagi af bakteríum sem mynda náttúrulega vörn gegn utanaðkomandi sýklum, óæskilegum efnum og sníkjudýrum. 

Þessar bakteríur framleiða sýkladrepandi-, veirudrepandi-, sveppadrepandi- og ýmis önnur efni sem verndar líkamann og virkja ónæmiskerfið í baráttu gegn utanaðkomandi sýkingum.  Auk þess mynda þær lífrænar sýrur sem lækka pH gildi sem næst þarmaveggnum, en við það eiga meinvirkar örverur erfiðara  með að fjölga sér. 

Slímhúðin með öllum sínum bakteríum er kölluð þarmaflóra.  Heilbrigð þarmaflóra hefur mikilvægu hlutverki að gegna varðandi ónæmiskerfið okkar.  Við bæði neytum ýmissa óæskilegra efna sem innihalda eiturefni og þar að auki eru í meltingarveginum ýmsar meinvirkar örverur sem mynda mikið af eiturefnum.  Heilbrigð þarmaflóra vinnur þá þannig að hún hlutleysir nítröt, fenól, indól, skatol, ksenobiotics og mörg önnur eitruð efni.  Einnig getur hún gert histamín, þungmálma og ýmis önnur eitur óvirk, þar á meðal ýmis krabbameinsvaldandi efni.   Gagnlegu bakteríurnar sem byggja upp frumuvegg þarmaflórunnar vinna einnig gegn offjölgun óæskilegra frumna og óæskilegra baktería í meltingarveginum.

Ýmsar óæskilegar veirur eða bakteríur eru alltaf til staðar í meltingarveginum (sem dæmi Candida Albicans, Herpes og fleiri), en gagnlegu bakteríurnar í þarmaflórunni halda þeim í skefjum og varna offjölgun þeirra. 

Þessar gagnlegu bakteríur taka einnig þátt í að melta fæðuna með því að brjóta hana niður í næringarefni sem þekjufrumurnar geta síðan nýtt sér, en Þessar frumur sjá síðan um frásog næringarefnanna. 

Þekjufrumurnar þurfa stöðugt að vera í endurnýjun eins og allar frumur líkamans og það gerist þannig að  yfirborð þarmanna er alsett totulaga útskotum, sem kallast þarmatotur.  Milli þeirra, upp við þarmavegginn eru kirtilhol þar sem frumurnar eru í sífelldri endurnýjun.  Smám saman færa þær sig upp þarmatotuna, þroskast og vinna að frásogi fæðunnar á leiðinni.  Þegar þær hafa náð fram á topp þarmatotunnar, losna þær frá henni og eyðast.  Þannig endurnýjast slímþekja þarmanna sífellt og samvinna frumna og gagnlegra baktería stuðla að góðri næringarupptöku ásamt því að stuðla að öflugu ónæmiskerfi. 

En hvað gerist ef þessi starfsemi raskast og hvað getur truflað eðlilegt ferli.

Ef þessar gagnlegu bakteríur og þekjufrumur skemmast eða verða fyrir hnjaski, geta þær ekki lengur sinnt hlutverki sínu eins og náttúran ætlar þeim og veggir meltingarvegarins verða þá ekki nægilega verndaðir. 

Orsakir geta verið margskonar eins og til dæmis má nefna örfá atriði:  veikindi, niðurgangur, þarmabólgur, langvarandi harðlífi, sýklalyfjanotkun, verkjalyf, hægðalyf,  andlegt áfall eða langvarandi álag.

Afleiðingar geta verið langvarandi og erfiðar á margan hátt, án þess að við tengjum þær við orsakirnar.  Þessar óæskilegu veirur og bakteríur sem við getum kallað tækifærisflóru, er okkur ekki til óþægðar fyrr en okkar gagnlega bakteríuflóra verður fyrir áfalli og ræður ekki við að halda tækifærisflórunni í lágmarki.  Tækifærisflóran er alltaf tilbúin til að skapa vandræði og bæði eflist og kemst nær þarmaveggjunum um leið og hún fær tækifæri til.  Hún brýtur ekki fæðuna niður í næringarefni eins og gagnlega þarmaflóran gerir og verða  þekjufrumurnar veikburða.  Þetta veldur hrörnun í veggjum meltingarvegarins, sem dregur úr heilbrigðu meltingarferli og á sama tíma dregur úr hæfni til að verja yfirborð þarmanna fyrir ágangi tækifærisflórunnar. 

Candida Albicans er til dæmis hluti af tækifærisflórunni og þegar gagnlega þarmaflóran hættir að ráða við að halda tækifærisflórunni í skefjum, þá vex hún og dafnar þar til hún er farin að valda einkennum eins og sveppasýkingu, sem leggst á alla slímhúð, jafnt í kynfærum, þvagfærum sem og í meltingarvegi.  Það er vandamál sem er oft erfitt og hefur ýmsa kvilla í för með sér.

Hin óæskilega þarmaflóra kemst svona nálægt þarmaveggjunum, þegar gagnlega þarmaflóran er ekki lengur fær um að sinna sínu hlutverki sem skyldi .  Hún hefur ekki lengur sömu getu til að framleiða sýkladrepandi-, veirudrepandi- og sveppadrepandi efni og önnur efni sem verndar líkamann og virkjar ónæmiskerfið.  Röskun getur orðið á sýrustigi meltingarvegarins því erfiðara er að mynda lífrænar sýrur sem lækka pH gildið en það er vörn gegn meinvirkum örverum.  Hún hefur ekki sömu getu til að hlutleysa eiturefni eða gera þau óvirk.   Þar af leiðandi er meira af eiturefnum sem frásogast inn í líkamann og eins og þegar ástandið er slæmt þá geta þarmar jafnvel orðið lekir og sjúkir.

Þetta veldur því að úr þeirri fæðu sem við neytum frásogast bæði æskileg næringarefni en samhliða eru ýmis óæskileg efni sem veikburða þarmaflóran hefur ekki geta unnið á.  Þessi efni geta síðan haft margvísleg áhrif á líkamann sem sjaldan er tengt við meltingarveginn, orsakir né afleiðingar.  Þetta getur valdið verkjum, þreytu, ýmsum tegundum af gigt, ofnæmi, exemi, svefntruflunum, einbeitingarskorti, athyglisbresti og lengi mætti telja. 

Fæðuóþol er því þegar við neytum einhverrar fæðu sem skert þarmaflóran ræður ekki almennilega að vinna úr og næringin sem frásogast inniheldur jafnvel óæskileg efni sem valda okkur óþægindum eða jafnvel veikindum.

Fæðuóþol og fæðuofnæmi er oft erfitt að skilgreina.  Fæðuóþol er ástand sem er á þeim tíma þegar mæling er gerð,  en með því að taka á vandanum er þetta ekki ástand sem ætti að vera viðvarandi alla ævi.  Eftir það er yfirleitt hægt að neyta aftur flestra þeirra fæðuvara sem áður mældust með óþoli.

Hvað er hægt að gera.  Á sama tíma og einstaklingur tekur út fæðuvörur sem óþol mælist fyrir, þarf að aðstoða einstaklinginn til að byggja upp meltingarveginn og ef mögulegt er taka á þeim vanda sem getur truflað þarmaflóruna.  Þetta hefur gefið góða raun, en þegar vandamálið hefur verið viðvarandi um lengri tíma, þá tekur lengri tíma og þarf stundum þolinmæði þar til bati næst.

 

 

Leita
Þjónustan
  • Sigrún Árnadóttir
  • Tímapantanir
  • Hómópatía
  • C.O.R.E. Inergetix
  • --------------------------
  • Hafðu samband
Fróðleikur
  • Allar greinar
  • Listi yfir greinar
  • --------------------
  • Almennt
  • Andleg málefni
  • Bætiefni og vítamín
  • Börn
  • Dýr
  • Heilsa
  • Mataræði
  • Ofnæmi
  • Pistlar
  • Remedíur
  • Sjúkdómar
Upplýsingar
  • Um mig
  • Staðsetning
  • Tímapantanir
  • Tenglar
English material
  • CategoryTester
Nýjustu innlegg
  • Hveiti
  • Lichen planus / Flatskæningur
  • Transfita
  • Acidophilus
  • Fótasveppur og Naglasveppur
  • Samvinna vítamína og bætiefna
  • Stjórnun barneigna án hormóna
  • Kartöflur af náttskuggaætt
  • Eldra fólk - Hómópatía og sjálfshjálp.
  • Sojavörur

Sigrún Árnadóttir - Hómópati
www.homopati.is
sigrun@homopati.is
sími: 863 6848

Endurgerð kyrrstæð útgáfa af homopati.is (2011).