MSG - monosodium glutamate
Braðefni í krydd og matvörur.
Því miður gerist það allt of oft að vörur til manneldis eru settar á markað án þess að gerðar hafi verið marktækar rannsóknir í nógu langan tíma varðandi aukaverkanir. Þetta getur valdið einstaklingum ómældri vanlíðan og haft áhrif á lífsgæði þeirra, þar sem vanlíðan getur dregið úr hæfni til að njóta lífsins. Þetta getur einnig haft neikvæð áhrif á andlega líðan. Einkenni eru oft greind sem einhverjir sjúkdómar og einstaklingur settur á lyf sem hafa líka sínar aukaverkanir. Þetta getur orðið að endalausum vítahring.
Aukaefnin í matvörum eru yfirleitt ekki náttúruleg efni og sífellt fleiri rannsóknir hafa sýnt að ýmis aukaefni í matvöru geta haft ýmsar aukaverkanir og ýtt undir ofvirka hegðun. Því er talið áríðandi að halda sig við náttúrulegar bragðaukandi vörur og taka út eins og mögulegt er, öll kemísku verksmiðjuframleiddu efnin. Meðal kemískra efna sem eru algeng í matvörum eru: litarefni, bragðefni,
rotvarnarefni og sætuefni. Þessi efni geta haft áhrif á taugakerfið og draga úr næmi fyrir taugaboðum.
MSG er bragðefnið glutamic sýra, sem fundið var upp 1907 af prófessor Kikunae Ikeda og var unnið úr þangi. Það hefur einnig verið unnin úr hveiti glúten, en er nú að mestu leyti gert úr bakteríu gerjun. Sýnt hefur verið fram á að ef við fáum of mikið magn af glutamic sýru geti það haft skaðleg áhrif á taugavefi þar sem glutamate framleiðir sérstakt efni sem safnast fyrir í heilanum og getur haft alvarlegar afleiðingar (til dæmis hypoglycemiu). Það er hefur verið ótrúlega mikið notað í margar tilbúnar fæðuvörur, dósamat, ýmsa rétti og er víða notað á veitingastöðum, bæði hér á landi og erlendis. MSG er í flestu sem heitir kraftur, eins og kjötkraftur, grænmetiskraftur, fiskikraftur og fleira. MSG er mikið notað í snakk, kryddblöndur, margar tilbúnar sósur og súpur, pylsur, skinkur og ódýrt álegg. Grafinn lax, marinerað kjöt, ýmsar tegundir af jógúrt og léttostum svo eitthvað sé nefnt.
Einkenni aukaverkana sem geta fylgt MSG: Það er talið geta valdið óþoli, ofnæmi og ýmsum hættulegum sjúkdómum. Algengustu einkenni sem margir kannast við er til dæmis: höfuðverkur, svimi, mikill þorsti, sokkin augu, verkur fyrir brjósti, uppþemba, vindgangur og verkir í kviðarholi, bjúgmyndun, liðverkir, sljóleiki, ógleði, slappleiki og óútskýrð þreyta eftir að hafa borðað mat sem inniheldur MSG.
MSG getur einnig haft áhrif á líkamann sem veldur offitu, sem erfitt er að ná aftur af sér.
Margir ráðleggja astma og ofnæmissjúklingum sérstaklega að forðast þetta efni. Sagt er að við inntöku bólgni upp meðal annars vefjakerfi líkamans.
Það hefur komið í ljós að sífellt fleiri sem sneiða hjá MSG hafa losnað við ýmis einkenni sem hafa verið viðvarandi í langan tíma.
Gott er að vera vel vakandi og lesa vandlega utan á umbúðir matvæla til að kynna sér innihaldslýsingar. Einnig er gott að kynna sér hvaða krydd eru algerlega laus við MSG.
Ýmis nöfn yfir MSG og náskyld efni í matvælum og kryddum:
Efni merkt E – 600 & eitthvað skyldi forðast.
MSG
E – 621
Monosodium glutamate
Þriðja kryddið
Bragðaukandi efni
Smagsforstærkere
Flavor enhancer
E - 620
E – 622
E – 623
E – 624
E - 625
E – 627
E - 631
Glutamate Textured protein
Hydrolyzed protein
Hydrolyseret vegetabilsk protein
Monopotassium glutamate (any protein that is hydrolyzed)
Glutamic acid Yeast extract
Calcium caseinate Yeast food
Sodium caseinate Autolyzed yeast
Gelatin Yeast nutrient
Glutaminsyre
Glutamater
Monokalium glutamat
Calciumdiglutamat
Monoammonium glutamat
Magnesiumglutamat
Gerextrakt
Yeastextrakt
Einnig skal sérstaklega varasteftirfarandi efni sem einnig geta haft áhrif á taugakerfið.
E-321 -> Butylated hydroxy toluene (BHT)
E-320 -> Butylated hydorxy anisol (BHA)
E-251 -> Sodium Nitrate
E-250 -> Sodium Nitrite
E-211 -> Sodium Benzoate
Potassium nitrate
Sulfur dioxide
Acesulfame-K