Magnesium
Magnesium (Sulfate Magnesium Gluconate Magnesium Citrate)
Magnesíum er steinefni sem nauðsynlegt er hverri einustu frumu líkamans og er fjórða algengasta efni líkamans.
Tveir frumþættir þess að heilinn starfi eðlilega eru nægar orkubirgðir og hæfilegt magn lífefna sem taka þátt í að senda taugaboð um líkamann. Magnesíum er lífsnauðsynlegt bæði til að framleiða orku og taugaboðefni. Það hefur einnig áhrif á viðhald varnarveggja milli blóðs og heila.
Magnesíum er helst að finna í frumum og beinum en örlítið brot eða um 1% er að finna í blóðinu. Magnesíum tekur þátt í yfir 300 lífefnafræðilegum ferlum í líkamanum og er eitt af aðalefnunum sem líkaminn nýtir til að byggja upp og styrkja beinin. Magnesíum tekur þátt í að framleiða prótein og hefur áhrif á orkulosun frá vöðvunum og stuðlar því að eðlilegri vöðva- og taugastarfsemi. Magnesíum hefur einnig áhrif á stjórnun blóðsykurs, líkamshita, og á stöðugleika hjartans.
Magnesíum er lífsnauðsynlegur efnahvati í virkni ensíma, sérstaklega þeirra sem vinna að orkuframleiðslu. Það hjálpar líka til við upptöku kalks og kalíums og skipar stórt hlutverk við efnaskipt vítamína og steinefna.
Magnesíum tekur þátt í viðhaldi og fjölgun húðfruma, aðstoðar við hormónastjórnun og streitustjórnun líkamans.
Magnesíum hefur áhrif á ótal margt:
Sinadráttur er mjög algengt vandamál og þar spilar magnsíum stórt hlutverk. Gamalt fólk á oft við þennan vanda að stríða og í flestum tilfella getur “Magnesíum” eða blandan af “Kalki og magnesíum” gert gæfumuninn ásamt hómópatískum remedíum. Ekki er þetta vandamál aðeins tengt eldra fólki því þetta getur hrjáð fólk á öllum aldri.
Magnesíum hjálpar til við að fyrirbyggja hjarta- og æðasjúkdóma, að draga úr kólesteróli, beinþynningu og ákveðnum tegundum krabbameins. Það getur unnið gegn fyrirburafæðingum, samdráttarkrömpum hjá þunguðum konum og dregið úr fósturskaða við fæðingu.
Magnesíum ásamt B6-vítamíni geta hjálpað til við losun nýrnasteina og dregið úr myndun þeirra.
Magnesíum hefur örvandi áhrif á þarmaveggina, og því hjálplegt við hægðatregðu. Magnesíum getur hjálpað við mígrenihöfuðverk, við heyrnatap sem stafar af hávaða. Dregið úr háþrýstingi. Minnkað tíðaverki. Magnesíum er gott vegna fótapirrings.
Hefur áhrif á andlegt jafnvægi og dregur því úr ofbeldi, þunglyndi, reiði, óþolinmæði og þrætugirni. Gott við kvíða og streitu þegar álag er mikið. Einnig hefur það áhrif á svima, slappleika í vöðvum vöðvakippum, auk þess að halda eðlilegu sýrustigi í líkamanum og líkamshita.
Magnesíum tekur þátt í að verndar veggi slagæða gegn álagi vegna skyndilegra breytinga á blóðþrýstingi.
Vinnur vel með kalki, B-vítamínum og fitusýrum við að halda húð heilbrigðri
Magnesíumskortur eykur áhrif svo ótrúlega margra sjúkdóma, að vert er að hafa það í huga í hvert sinn þegar eitthvað bjátar á. Skortur á öðrum steinefnum getur valdið ýmsum kvillum en magnesíum og sínk eru þau mikilvægustu.
Skortur á magnesíum er algengur hjá fólki með vefjagigt og síþreytu (CFS) og hafa rannsóknir staðfest það.
Magnesíumskortur finnst gjarnan við upphaf margra hjarta- og æðavandamála og getur verið orsök banvæns hjartakasts og skyndilegs hjartastopps. Auk þess verið orsök astma, krónísks sársauka og lungnasjúkdóma. Magnesíumskortur er einnig nokkuð algengur hjá fólki sem þjáist af sykursýki, beinþynningu, Chron’s, of- eða vanstarfsemi í skjaldkirtli.
Hjá eldra fólki geta skortseinkennin verið áberandi sem: skert matarlyst, andlegt rugl, þunglyndi, svefnleysi, vöðvasamdráttur, skjálfti og óeðlilegur hjartsláttur.
Þar sem tenging milli magnesíumskorts og taugafræðilega sjúkdóma, eins og skorti á serótónín, getur það valdið depurð, taugaveiklun, sjálfsmorðsáráttu og ofbeldishneigð. Getur veri orsök mikillar taugaspennu, einbeitingarskorts, svefnleysis, rugls, andlegrar þreytu og æðiskasta.
Skortur á magnesíum hefur áhrif á flutning tauga- og vöðvaboða og getur valdið vöðvakrömpum, sinadrætti, ristiltruflun, ógleði, höfuðverk, iðraólgu, óeðlilegum hjartslætti, flogum og skjálfta.
Skortur á magnesíum getur stafað af því að of mikið magn þess tapast með þvagi, eða vegna einhvers kvilla í meltingarfærum Sykursjúklingum, eldra fólki, og áfengissjúklingum er hættara við þessum skorti en öðrum. Skortur getur valdið svipuðum einkennum og sykursýki.
Magnesíum er í mörgum fæðutegundum en oftast í fremur litlu magni. Magnesíum finnst til dæmis í möndlum, baunum, hirsi, hnetum, sesamfræum, sojabaunum, augnbaunum, ölgeri, heilkorni, brauði, pasta og hýðishrísgrjónum. Einnig í grænu laufgrænmeti, spergilkáli og spínati, hvítlauk, eplum, apríkósum, avókadó, bönunum, fíkjum, greip, sítrónum og ferskjum. Finna má magnesíum í fiski, rækjum, laxi, söl, sjávarfangi, kjöti og mjólkurvörum. Vatn getur innihaldið magnesíum en það fer þó mikið eftir því hvaðan vatnið kemur.
Þær jurtir sem innihalda magnesíum eru meðal annarra; alfa alfa spírur, kattarmynta, cayenne pipar, kamilla, haugarfi, fíflar, augnfró, fennelfræ, fenugrek, humall, piparrót, sítrónugras, lakkrís, netlur, hafrastrá, paprika, steinselja, piparmynta, hindberjalauf, rauðsmári, rófustilkar, kakó, rabarbari, spínat og te.
Ástaða þess að einstaklingar fá ekki nægilegt magn af magnesíum geta verið af fleiri en einni ástæðu. Til dæmis getur jarðvegur sem korn og fleiri afurðir eru ræktuð í verið mjög magnesíumsnauður. Drykkjarvatn of snautt. Lífsstíll með of mikilli neyslu á sykri, áfengi og mettaðri fitu, getur haft áhrif. Ekki síst hafa ýmis lyf áhrif, eins og sem dæmi: sýklalyf, þvagræsilyf, steralyf, sýrubindandi lyf og getnaðarvarnarpillan.
Þar sem magnesíum, líkt og önnur steinefni, tapast við matreiðslu, er ákjósanlegast að nota sem minnst vatn og sjóða matinn í sem stystan tíma.
Vægan magnesíumskort er hægt að bæta með því að neyta fæðutegunda sem eru ríkar af magnesíum. Magnesíum er einnig til í töfluformi, en líkaminn á fremur erfitt með að nýta magnesíum nema það sé bundið amínósýrum. Magnesíum er til í því formi og þá bundið sítrati. Þegar magnesíum mælist mjög lágt þá er því stundum sprautað í vöðva eða beint í æð. Vert er að geta þess að oft þarf að taka magnesíum inn í langan tíma áður en merkjanlegur árangur fer að finnast.
Þar sem aðeins um 1% af magnesíumbirgðum líkamans er í blóðinu, er mæling á magnesíum í blóði frekar lélegur mælikvarði á magnesíumforða líkamans. Nákvæmari mælingu á magnesíum er hægt að fá með því að mæla magn þess í rauðu blóðkornunum (RBC Mg.).
Ráðlagðir dagskammatar
Ungabörn 0-6 mán 50 mg
Ungabörn 7-12 mán 80 mg
Börn 1-3 ára 85 mg
Börn 4-6 ára 120 mg
Börn 7-10 ára 200 mg
Karlar 11-14 ára 280 mg
Karlar eldri en 14 ára 350 mg
Konur eldri en 10 ára 280 mg
Konur á meðgöngu 280 mg
Konur með barn á brjósti 280 mg
Aukaverkanir: Getur valdið linum hægðum.
Notkun eftirfarandi lyfja getur haft áhrif: sýklalyf með tetracýklínsamböndum, kínólónsamböndum og súlfónýlúrea samböndum, ACE hemjarar, H2-blokkarar, ýmis þvagræsilyf, getnaðarvarnalyf, dígoxín, fenýtóín og sínk.
Einstaklingar með nýrnasjúkdóma eða hjartasjúkdóma ættu ekki að taka inn magnesíum nema að höfðu samráði við lækni.